Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla

Ég þakka öllum nær og fjær fyrir líðandi ár sem var okkur fjölskyldunni einkar gjöfult og gott.

Hæst ber fæðing sonar okkar sem sýndi það strax frá byrjun hversu einstakur hann er. Bæði í útliti og atgervi. Hann er jafn mikill gleðigjafi og eldri systur hans og þökkum við Guði þá miklu blessun sem börnin okkar eru. Mér er þess vegna efst í huga mikið þakklæti á þessum tímamótum, bæði fyrir fjölskylduna okkar og hversu rík við erum af einstökum vinum. Við hugsum í kvöld til fjölskyldunnar, allra þeirra góðu vina okkar sem fagna nýju ári heima, sem og til nýrra vina og kunningja sem við höfum eignast hér úti. Með einlægri ósk um gæfuríkt komandi ár.

 Anita og fjölskylda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berta María Hreinsdóttir

Gleðilegt ár kæru vinir og takk fyrir góð kynni og skemmtilegar samverustundir á árinu sem var að líða.....þið eruð frábær

Sjáumst hress og kát:)

Berta María Hreinsdóttir, 1.1.2009 kl. 20:22

2 identicon

Kæra fjölskylda, gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allar góðu stundirnar á liðnum árum, vona að nýtt ár fari um ykkur mildum höndum og vonumst til að sjá ykkur með hækkandi sól ;o)

Kveðja Birna

Birna (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 21:39

3 identicon

Takk sömuleiðis báðar tvær

Anita (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband